PsaPs SálmarnirPsalmów, sálmurpsalm SálmarnirKsięga Psalmów, sálmurpsalm 149

Przekłady

Hallelúja! Lofið Drottin! Syngið honum nýjan söng. Lofsyngið honum öll þjóðin.

Ó, Ísrael, gleð þig yfir skapara þínum. Þið sem búið í Jerúsalem, fagnið yfir konungi ykkar! Lofið nafn hans með gleðidansi og leikið fyrir hann á bumbur og gígjur.

Drottinn hefur unun af lýð sínum. Hann frelsar hina auðmjúku. Hinir trúuðu gleðjist með sæmd og syngi fagnandi í hvílum sínum.

Lofið hann, þið fólk hans! Framkvæmið refsingu hans á þjóðunum með tvíeggjuðu sverði. Setjið konunga þeirra og fyrirmenn í járn og fullnægið á þeim skráðum dómi. Drottinn er vegsemd þjóðar sinnar. Hallelúja!